← Öll skrif

Af hverju ég setti upp þessa síðu

Ég hef lengi ætlað mér að hafa einn stað þar sem ég held utan um það sem ég er að hugsa. Hugmyndir dreifast annars út um allt: í minnispunkta, LinkedIn-færslur, spjall á kaffihúsum og hálfkláruð skjöl.

Undanfarin ár hef ég unnið með fyrirtækjum og stofnunum að því að finna hvar gervigreind getur gert gagn. Það sem stendur upp úr er fólkið, vinnan og hvernig hún breytist.

Hvað kemur hingað

Hér ætla ég að skrifa stutt og reglulega um það sem ég er að velta fyrir mér, til dæmis:

  • hvernig fólk og gervigreind vinna best saman
  • hvað það þýðir fyrir vinnustaði að allir geti smíðað sínar eigin lausnir
  • hvaða samfélag við viljum byggja í kringum tímann sem okkur er lofað

Sumt verður hálfmótað. Það er í lagi. Mér finnst betra að hugsa upphátt en að bíða eftir fullkominni niðurstöðu.

Eldri greinar sem ég skrifaði annars staðar eru líka komnar hingað, svo allt sé á einum stað.

Ef þú vilt spjalla um þetta, sendu mér línu á sigurdur@sigurduroli.com.

Fleiri skrif